Dásamlegur kaffiskrúbbur sem framleiddur er úr kaffi, sjávarsalti, lífrænum íslenskum sjávarþarfa og hreinum olíum. Kaffið er fullkominn náttúrulegur skrúbbur, minnkar bólgur og er hlaðið andoxunarefnum sem eru góð fyrir húðina.
Fyrirtækið Verandi endurvinnur hágæða hráefni úr íslenskum matvælaiðnaði og landbúnaði sem annars færi til spillis (e. upcycle).
Af hverju kaffiskrúbbur frá Verandi?
– Verandi byggir á hringrásarhagkerfinu í sinni framleiðslu þ.e. að endurnota, gera við, endurnýja og endurvinna. Hugað er að umhverfinu á öllum stigum framleiðslunnar.
– Í framleiðsluna er nýttur kaffikorgur sem annars hefði líklega verið hent
– Innlend framleiðsla
Efni, umbúðir og framleiðsla
– Innihaldsefni: Recycled coffee ground (Coffee), Sodium Chloride (Pure Sea Salt), Prunus Dulcis (Cold-Pressed Sweet Almond Oil), Laminaria digitata (Organic Icelandic Seaweed), Citrus Paradisi (Grapefruit Essential Oil), Citrus Limon (Lemon Essential Oil)
– Kaffikorgurinn kemur frá veitingastað Ikea á Íslandi og hefði annars líklega verið hent. Kaffið er UTZ-vottað, lífrænt og „free-trade“.
– Án PEG, parabena, súlfata og litarefna
– Varan er ekki prófað á dýrum
– Umbúðir eru úr 100% endurunnu plasti
– Framleitt á Íslandi
Notkun og umhirða
– Bleytið húðina vel í sturtu eða baði, berið skrúbbinn á ykkur með hringlaga hreyfingum í átt að hjartanu, gott getur verið að bíða aðeins með skrúbbinn á húðinni, skolið vel.