20 mínútna kertasett með brass kertastjaka í viðar gjafaöskju. Í öskjunni eru 20 handgerð kerti úr hreinu, ómeðhöndluðu bývaxi ásamt brass kertastjaka. Allir hlutir (þar með talið öskjurnar) eru handgerðir úr sjálfbærum efnivið.
Hugmyndin á bakvið gjafaboxið er áminning að hægja á og taka sér 20 mínútur á dag í hugleiðslu, eiga rólega stund með sér, á meðan kertið brennur.
Áfyllingar eru fáanlegar og passa bæði í öskjuna og kertastjakann.
Kertin leka ekki (gætið þess að þau standi beint) og reykja ekki (gætið þess að ekki sé trekkur, loftop eða loftkæling í nágrenninu). Hvert kerti brennur í um það bil 20 mínútur.
Stærð kerta: um 6 cm á hæð x 6 mm á breidd við botn.
Stærð öskju: 13 cm x 10 cm x 3 cm.
Handgert úr hráu & náttúrulegu býflugnavaxi í Bretlandi. Létt og náttúruleg lykt af hunangi. <engin óæskileg efni, litarefni né aukaefni. 100% hreint & sjálfbært býflugnavax.
Kerti úr býflugnavaxi eru í raun eini sjálfbæri og umhverfisvæni kosturinn þegar kemur að kertum á viðráðanlegu verði. Kertin eru zero waste en þegar þau eru brennd verður ekkert eftir.
Ljósið sem kemur frá kertinu minnir á sólarljós og eru þau því einnig mjög góð til að minnka þunglyndi en þau hressa við skapi og anda. Liturinn getur verið mismunandi þar sem að einungis er notað náttúrulegt býflugnavax.