Þessar svörtu hjólabuxur eru einföld og stílhrein grunnflík sem sameinar þægindi og fágað útlit. Þær eru aðsniðnar með þröngu sniði sem mótar líkamann fallega og styttri lengd sem hentar bæði undir kjóla, með oversized skyrtum eða í sportlegum hversdagsstíl.
Buxurnar eru úr lífrænni bómull sem er mjúk við húð, andar vel og veitir þægindi allan daginn. Minimalísk hönnun með hreinum línum og lógóprenti gerir þær auðveldar í stílsetningu – hvort sem þú vilt afslappað eða aðeins meira „put-together“ look.
Upplýsingar:
- Aðsniðið snið (fitted)
- Þröngar skálmar (skinny fit)
- Stutt lengd (innanmál ca. 19,5 cm)
- Engir vasar
- Engin lokun – teygjanlegt mitti
- Efni: Lífræn bómull
Fullkomnar sem þægileg og fjölhæf flík í fataskápinn – bæði fyrir hreyfingu og hversdagsnotkun.