Málningarsettið inniheldur allt sem þú þarft til að mála heima eða á flakkinu.
Föndursettið inniheldur blöð með litapallettu á sem þarf einungis að bleyta örlítið og nota til að mála. Inniheldur 20 blöð með mynd, 10 tóm blöð, 3 viðarbursta, 2 ramma og 1 mini trönur. Kemur í fallegri og eigulegri málmtösku.
- Hannað fyrir 6 ára+
- Auðvelt handverk heima eða á ferðinni
Petit Collage var stofnað af henni Lorena Siminovich árið 2006. Markmið fyrirtækisins frá upphafi hefur verið að hafa sjálfbærni að leiðarljósi. Allar vörur eru hannaðar með það í huga að þær endist vel og séu úr hágæða efnivið. Markmiðið er að gera betri heim fyrir komandi kynslóðir og er hver einasta vara hugsuð útfrá því. Efniviðurinn í leikföngunum er endurnýttur pappi, FSC wood og FSC pappír, GOTS vottaður bómull, plöntu blek og vatnsmálning.