LÍFRÆN GRASKERSFRÆOLÍA. 200 ML
- In stock, ready to ship
-
Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 20.000kr
Lífræn graskersfræolía frá Viridian, unnin úr 100% hreinum graskersfræjum og engu öðru bætt við. Fræin koma úr lífrænni ræktun í Austurríki og eru léttristuð áður en þau eru kaldpressuð til að hámarka bragð og ilm olíunnar. Olían er úr fyrstu kaldpressun, án leysiefna og sett á brúnar glerflöskur undir köfnunarefni til að verja hana gegn lofti og ljósi.
Graskersfræolía er þekkt fyrir að gefa omega 6 og omega 9 fitusýrur í hlutföllunum 1:1. Hún er einnig rík af karotínóíðum og fituleysanlegum vítamínum, þar á meðal E-vítamíni. Rannsóknir hafa sýnt að graskersfræ stuðla að heilbrigðri starfsemi blöðruhálskirtils.
Þessi næringarríka og bragðgóða olía passar vel í þeytinga, salatsósur, ídýfur og súpur, eða til að dreypa yfir grænmeti, pasta, hrísgrjón og kartöflur. Einnig má taka hana beint af skeiðinni.
Ástæður til að elska þessa vöru:
U.þ.b. 40 teskeiðar í hverri 200 ml flösku
Takið beint af skeiðinni eða blandið í mat og þeytinga
Omega 6 og omega 9 í hlutföllunum 1:1
Lífrænt vottuð af Soil Association
Inniheldur 100% virk efni, þróuð af sérfræðingum í næringarfræði, án gerviefna eða óæskilegra aukaefna. Framleitt í samræmi við strangar siðferðiskröfur Viridian: engar dýratilraunir, engin erfðabreytt efni og engin pálmaolía.
200 ml
Leiðbeiningar:
Fullorðnir: 1 til 3 teskeiðar daglega með mat.
Börn 2 til 7 ára: ½ teskeið daglega.
Börn 8 til 11 ára: 1 teskeið daglega.
Börn 12 til 16 ára: 2 teskeiðar daglega.
Takið beint af skeiðinni eða blandið út í kaldan mat eða drykk. Best er að taka olíuna með máltíð og vatni.
Hentar ekki börnum yngri en 2 ára. Ekki skal fara yfir ráðlagðan dagskammt nema í samráði við heilbrigðisstarfsmann. Ekki skal nota vöruna á meðgöngu eða við brjóstagjöf nema í samráði við heilbrigðisstarfsmann. Geymist á köldum og þurrum stað þar sem börn hvorki sjá né ná til. Geymist í kæli eftir opnun og notist innan 6 vikna. Þetta er fæðubótarefni og kemur ekki í stað fjölbreyttrar fæðu og heilbrigðs lífsstíls.
Innihald:
| 1 teskeið (5 ml) | Þyngd |
|---|---|
| Organic Pumpkin seed (Cucurbita pepo) oil | 100% |
| Providing: Linoleic acid (Omega 6) | 1895mg |
| Oleic acid (Omega 9) | 1555mg |
Innihaldið er vegan.
Án allra aukaefna eða nastís.
Rykdustari úr strútsfjöðrum - hvítur - 70 cm
ZUMA LEATHER DESERT SAND
Mjög góður og flottur
Virkar mjög vel.
Gives me a smooth shave without irritating
Sjampóduft - rósmarín & koffín