Skemmtileg og klassísk hringla og tilvalið sem fyrsta leikfangið. Fallegir pastel litir og auðvelt fyrir litla fingur að grípa og halda í. Þau fylgjast með hljóðinu þegar lyklarnir skella saman og æfa sig að grípa um þá og skoða.
Endurunnin viður og sjálfbær framleiðsla.
Plan Toys er fyrsta fyrirtækið í heiminum sem endurnýtir gúmmítré til framleiðslu á viðar leikföngum. Frá árinu 1981 hefur teymi Plan Toys unnið markvisst að því að framleiða hágæða viðar leikföng með það að leiðarljósi að stuðla að sjálfbærni og vernda umhverfið, nota náttúrulegustu hráefni sem möguleiki er á og endurnýta allan efnivið sem fellur til í framleiðsluferlinu.