Andlitsolían frá Benja inniheldur 100% hreina arganolíu sem er sérstaklega rík af E vítamíni og góðum fitusýrum. Nærir, endurnærir og hleypir nýju lífi í þreytta húð, bólgueyðandi og verkjastillandi. Hefur góð áhrif á myndun kollagen og elastin sem heldur húðinni unglegri og viðheldur teygjanleika hennar.
Ilmkjarnaolíur
Frankincense: Vinnur gegn öldrun húðarinnar.
Yarrow: Vinnur gegn öldrun húðarinnar t.d. öldrunarblettir minnka og jafnvel hverfa.
Sandalwood : Minnkar bólgur og dregur úr kláða.
Rose: Minnkar háræðaslit, þrota og hrukkur. Endurnýjar húðina.
Rosewood: Góð á bólur og þurra húð. Minnkar hrukkur.
Dekur fyrir andlitið og aðeins þarf 3-4 dropa á andlit og háls.
Berið á húðina kvölds og morgna.
Skemmir ekki förðun ef borin er undir farða.
Varúð: almenn ef óþol er fyrir innihaldsefnum.
Benja er íslenskt húðvörumerki framleitt á Ísland. Allar vörur þeirra eru handunnar og án allra kemískra aukaefna. Við sérhæfum okkur í framleiðslu á hágæða, lífrænum, vegan húð- og baðvörum úr náttúrulegum hágæða hráefnum sem eru áhrifaríkar og nærandi fyrir húð, líkama og sál. Framleiðslan er byggð á aldargömlum búddisma fræðum þar sem andleg og líkamleg vellíðan er í fyrirrúmi og náttúran er meðalið okkar. Vörurnar eru ríkar af E-vítamíni frá nátturunnar hendi, góðum fitusýrum, andoxandi, rakagefandi og endurnærandi. Okkar markmið er að ná fram þinni náttúrulegu fegurð, losa um streitu og auka vellíðan í húð líkama og sál. Allar vörurnar henta öllum kynum og aldurshópum.