Andlitsskrúbbur með kaffi og rosehip olíu
Dregur úr roða og pirringi í húð
Minnkar dökkabletti og mislit í húð
Fyrir allar húðgerðr en sérstaklega gott fyrir venjulega og þurra húð
Vekur húðina til lífsins og gerir hana mjúka, slétta og ljómandi. Þessi náttúrulegi andlitsskrúbbur er gerður úr endurnýttum Arabica kaffikornum (endurnýtt frá handverks kaffihúsum) til að fjarlægja dauðar húðfrumur á mildan en áhrifaríkan hátt.
• Kaffikorgurinn skrúbbar burt dauðar og þurrar húðfrumur og gerir húðina mjúka og slétta
• Sítrusolíur (sérstaklega appelsínu- og lemon verbena) hafa bakteríu- og bólgueyðandi eiginleika sem róa roða og geta dregið úr mislitum húðtón.
• Shea-smjör og jojoba-olía nærir húðina eftir skrúbbun og hjálpar við að halda raka.
Notkun:
Setja á rakt andlitið og nudda létt í hringi og skola síðan af með volgum þvottapoka eða margnota andlitsskífum. Gott að nota 1-2 í viku fyrir sem bestan árangur.