Óþrjótandi möguleikar við leik. Hægt er að nota hálfhringina við að búa til regnboga eða raða í falleg mynstur. Hægt er að nota hálfhringina með stóra regnboganum frá Grimms til þess að búa til regnbogahús og litrík mannvirki.
Grimms leikföngin eru framleidd í Evrópu úr trjám sem sótt eru úr sjálfbærum skógum. Framleiðslan fer fram í sérvöldum vinnustofum víða um Evrópu og eru einungis náttúruleg litarefni notuð og flest leikföngin handpússuð sem gerir viðinn náttúrulegri. Lögð er áhersla á tímalausa hönnun sem endist lengi og erfist jafnvel á milli kynslóða. Leikföngin frá Grimms henta mjög breiðum aldri enda óteljandi möguleikar og hugmyndir sem hægt er að fá í leik með opnum efnivið eins og þau eru.