Róandi - afstressandi - slakandi
May Chang er einnig þekkt sem olía kyrrðarinnar þar sem hún er oft notuð af þeim sem þurfa á djúpum svefni að halda.
Dásamleg róandi "feel good" ilmkjarnaolía og er þekkt fyrir uppbyggjandi og afslappandi eiginleika sína og létta á kvíðatilfinningu hreinsa hugann.
Ilmkjarnaolíuna má nota í nuddolíu, í gufu, í baðið, í heimilisþrifin og í þvottinn svo fátt eitt sé nefnt.
Olíunni má blanda í sápur, hársápur, aðrar olíur eða krem til að fá frískandi ilminn. Athugið að ilmkjarnaolíur eru ekki bornar beint á húð heldur er þeim blandað saman við aðrar hlutlausar olíur eða krem í litlu magni.
Til að fá frískandi ilm af þvottinum, til dæmis með sápuskeljunum frá Living Naturally sem við hjá Mena notum allar fyrir okkar þvott og bjóðum upp á hér á síðunni, þá er gott að setja nokkra dropa af olíunni í þvottavélina ásamt sápuskeljunum.
Fyrir heimilisþrifin þá er til dæmis gott að setja nokkra dropa af olíunni í vatn og edik til að þurrka af eða skúra. Það má líka nota olíuna beint á klísturbletti (ekki samt á pússaðan eða unnin við og prófið alltaf fyrst á litlu svæði sem sést ekki).
Athugið að imkjarnaolíur eru ekki bornar beint á húð heldur er þeim blandað saman við aðrar hlutlausar olíur eða krem í litlu magni.
Innihald 10 ml.


Olían kemur í lítilli flösku með dropaskammtara og tappa úr harðplasti.





