Bergamot - lífræn Ilmkjarnaolía

Bergamot - lífræn Ilmkjarnaolía

Bergamot - lífræn Ilmkjarnaolía

Verð 3.490 kr
/
  • Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 15.000kr
  • Umhverfisvænar og vandaðar vörur
  • Á lager
  • Vara á leiðinni
með VSK Sendingarkostnaður reiknast í greiðsluferli

Fersk og ávaxtarík með smá balsamískum undirtón. Sótthreinsandi, upplífgandi, afslappandi, hressandi. Bergamot olían er upplífgandi og hressandi sem gæti verið gagnlegt í skammdeginu til að hressa sig við. Bergamot olían er mikið notuð í kerti og sápur og frábær sem heimilisilmur í gufutæki, í nuddolíu, baðið, heimilisþrifin og þvottinn.

Athugið að ilmkjarnaolíur eru ekki bornar beint á húð heldur er þeim blandað saman við aðrar hlutlausar olíur eða krem í litlu magni. 

Til að fá frískandi ilm af þvottinum, til dæmis með þvottaskeljunum frá Living naturally sem við hjá Mena notum allar fyrir okkar þvott og bjóðum upp á hér á síðunni, þá er gott að setja nokkra dropa af olíunni í þvottavélina ásamt þvottaskeljunum.

Fyrir heimilisþrifin þá er til dæmis gott að setja nokkra dropa af olíunni í vatn og edik til að þurrka af eða skúra. Það má líka nota olíuna beint á klísturbletti (ekki samt á pússaðan eða unnin við og prófið alltaf fyrst á litlu svæði sem sést ekki).

Innihald 10 ml.


Olían kemur í lítilli glerflösku með dropaskammtara og tappa úr harðplasti.

HandgertVeganLifræntVistvaentNiðurbrjótanlegtÁn dýratilrauna

This site is protected by hCaptcha and the hCaptcha Privacy Policy and Terms of Service apply.

Meira frá Þvottur
Ferðasápa
890 kr
Nýlega skoðað