Grunnur Alepposápunnar er olífuolía sem eru blandaðar lárviðarolíu í mismiklu magni, Lárviðarolía er ekki bara rakagefandi heldur einnig bakteríu- og sveppadrepandi.
Hágæða Aleppo sápa framleidd í Aleppo/Sýrlandi, mælt með fyrir daglega hreinsun á andliti, hári og líkama. Hentar líka til raksturs.
Því hærra sem lárviðarolíuinnihald sápunnar er, því rakagefandi er hún.
Af hverju Aleppo sápa?
– Sápa úr einföldum, hreinum innihaldsefnum, mild og rakagefandi og hentar flestum
– Margnota; fyrir andlit, hendur, líkama, hár og rakstur og m.a.s. uppþvottinn
– Fyrir hárþvott: 85/15% Alepposápa hentar flestum hárgerðum. Fólk með þurrara hár gæti prófað 70/30 eða 50/50 blönduna og ef hárið er feitt gæti 100% olífuolíusápan hentað vel.
– Ef þú ættir að velja eina sápu á ferðalagið væri Aleppo sápa kjörin
– Plastlausar og úr lífniðurbrjótanlegum innihaldsefnum og án allra tilbúinna aukaefna, s.s. litar- og lyktarefna
– Kaup á Aleppo sápu styrkja lítil fjölskyldufyrirtæki sem viðhalda aldagamalli handverkshefð
– Uh, Ofurfallegar og góðar
Efni, umbúðir og framleiðsla
– þyngd 190-200g
– Innihaldsefni: 50% ólífuolía og 50% lárviðarlaufsolía
– PH gildi 8 – 9 – ath
– Án pálmólíu, dýraafurða, litar- og ilmefna og rotvarnarefna.
– Umbúðalausar
– Framleitt af litlu fjölskyldufyrirtæki í Aleppo, Sýrlandi
Notkun og Umhirða
– Til hárþvotta: Nuddið stykkinu í hársvörðin og nuddið sápufroðunni sem myndast í hárið. Skolið sápuna mjög vandlega úr hárinu.
– Passaðu að láta sápustykkið standa á þurrum stað sem safnar ekki vatni þegar það er ekki í notkun. T.d. með því að láta það standa á sápudiski eða lúffa svampi.
– Geymist alla vega sex ár ónotuð
Sagan
Alepposápugerð byggir á þúsund ára sápuhefð, gerð sápunnar er hægt ferli. Sápan er blönduð í nokkra daga við 200°hita í stórum pottum, síðan er dreift úr henni á gólf þar sem hún er skorin í kubba og stimpluð með upprunastimpli framleiðslufyrirtækisins. Eftir það er hún hlaðin upp eins og múrsteinar en þó þannig að sem mest bil sé milli hverrar sápu svo súrefni komist sem best að hverju stykki. Svona er sápan látin standa í 6 – 12 mánuði, við það harðnar hún og verður endingarbetri. Aleppo sápur missa um 30% af ummáli sínu í þessu ferli. Sápurnar eru því aldrei nákvæmlega jafn stórar eða þungar og má segja að hver og ein sé einstök.
Aleppo sápan er í raun græn. En hún gyllist við að standa og þorna mánuðum saman. Því er hún gyllt að utan en græn að innan.