Sjampóduft - rósmarín & koffín

Sjampóduft - rósmarín & koffín

Verð 3.990 kr
/
  • Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 15.000kr
  • Umhverfisvænar og vandaðar vörur
  • Á lager
  • Vara á leiðinni
með VSK Sendingarkostnaður reiknast í greiðsluferli

Enn ein geggjuð nýjung frá Awake Organics og varla hægt að lofsama þetta sjampó nógu mikið. Hársápa í duftformi og virkjast þegar vatn er notað með henni, breytist úr dufti í sjampó sem freyðir vel og hreinsar hársvörðinn án þess að þurrka hann.
Hentar vel fyrir allar hárgerðir en sérstaklega fyrir veikt, skemmt (litað) og/eða þunnt hár. Hárið verður ótrúlega hreint og loftmikið.
Hársápan er eingöngu gerð úr náttúrulegum hráefnum sem hreinsa vel, en eru mild fyrir hársvörðinn.

Rósmarín olía er öflug og mikið notuð við Miðjarðarhaf til að þykkja hár. Rósmarín ilmkjarnaolía eykur blóðflæði sem gerir það að verkum að blóðflæðið eykst til hársekkjanna, styrkir þá og hárið losnar síður. Rósmarín er einnig bakteríudrepandi og bólgueyðandi og dregur þannig úr kláða og og þurrum hársverði.
Náttúrulegt koffín úr Guarana fræjum. Guarana inniheldur 4 sinnum meira koffín en kaffibaunir. Koffín eykur blóðflæði í hársverði og til hársekkja sem minnkar hárlos og stuðlar að vexti hársins.
Kókosmjólk inniheldur laurínsýru, prótein og vítamín E, B1, B3, B5 og B6. Hún er náttúruleg hárnæring sem nærir, mýkir og styrkir hárið, er mjög mild fyrir hársvörðinn.

Notkun:
Settu lítið af duftinu í lófann (ca 1/2 tsk) og 3-5 dropa af vatni og blandaðu saman (á að vera þykkt). Dreifðu því síðan á hárið og nuddaðu vel, settu meira vatn til að fá meiri froðu. Nudda, nudda, nudda. Skolaðu úr eins og venjulega.

Magn: Inniheldur 60 gr. (ca 35 þvottar)
Umbúðir: Hársápan kemur í álflösku sem er endurvinnanleg.

Innihaldslýsing:
**Sodium Cocoyl Isethionate (Coconut-derived Cleanser), *^Tapioca Starch, *^Cocos Nucifera (Coconut Milk) Powder, **Coco-glucoside (Coconut-derived Cleanser), *^Paullinia Cupana (Guarana Seed) Powder, ++Triticum Vulgare (Wheatgerm) Oil, Acacia Senegal (Acacia Tree) Gum, ^Citric Acid, *^++Maltodextrin, *Rosmarinus Officinalis (Rosemary Leaf) Oil, *Cymbopogon Flexuosus (Lemongrass) Oil, +Citral, +Limonene, +Geraniol. (*Certified Organic Ingredient, **Naturally-derived & Biodegradable, ^Food Grade, +Occurs Naturally in Essential Oils, ++Gluten Free)

 


HandgertNáttúrulegtÁn dýratilrauna

This site is protected by hCaptcha and the hCaptcha Privacy Policy and Terms of Service apply.

Meira frá Sjampó
Ferðasápa
890 kr
Nýlega skoðað

Customer Reviews

Based on 11 reviews
100%
(11)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
G
Guðríður Pàlmarsdóttir
þurrt hár

Besta sjampó sem ég hef fundið fyrir þurrt grátt hár. Þvær vel og gefur góðan glans.

Ó
Ólöf
Mjög gott sjampó við þurrum hársverði

Virkaði vel frá fyrstu notkun. Keypti þetta útaf þurrum hársverði og þetta svínvirkar.

Þ
Þorgerður María Þorbjarnardóttir
Frábært sjampó

Virkar mjög vel, hárið mitt er með æðislega áferð.