Fersk og ávaxtarík með smá balsamískum undirtón. Sótthreinsandi, upplífgandi, afslappandi, hressandi. Bergamot olían er upplífgandi og hressandi sem gæti verið gagnlegt í skammdeginu til að hressa sig við. Bergamot olían er mikið notuð í kerti og sápur og frábær sem heimilisilmur í gufutæki, í nuddolíu, baðið, heimilisþrifin og þvottinn.
Athugið að ilmkjarnaolíur eru ekki bornar beint á húð heldur er þeim blandað saman við aðrar hlutlausar olíur eða krem í litlu magni.
Til að fá frískandi ilm af þvottinum, til dæmis með þvottaskeljunum frá Living naturally sem við hjá Mena notum allar fyrir okkar þvott og bjóðum upp á hér á síðunni, þá er gott að setja nokkra dropa af olíunni í þvottavélina ásamt þvottaskeljunum.
Fyrir heimilisþrifin þá er til dæmis gott að setja nokkra dropa af olíunni í vatn og edik til að þurrka af eða skúra. Það má líka nota olíuna beint á klísturbletti (ekki samt á pússaðan eða unnin við og prófið alltaf fyrst á litlu svæði sem sést ekki).
Innihald 10 ml.
![](https://cdn.shopify.com/s/files/1/2271/3597/files/logo_vegan_small.png?v=1517354000)
![](https://cdn.shopify.com/s/files/1/2271/3597/files/logo_eco_cert_small.png?v=1517356536)
Olían kemur í lítilli glerflösku með dropaskammtara og tappa úr harðplasti.
![Handgert](https://cdn.shopify.com/s/files/1/2271/3597/files/takn_handgert_large.png?v=1517682887)
![Vegan](https://cdn.shopify.com/s/files/1/2271/3597/files/takn_vegan_9d71da36-0276-4850-a23f-36ab753a85aa_large.png?v=1517682840)
![Lifrænt](https://cdn.shopify.com/s/files/1/2271/3597/files/takn_lifraent_b37a7d45-1062-4a08-8693-098fffeb2637_large.png?v=1517682748)
![Vistvaent](https://cdn.shopify.com/s/files/1/2271/3597/files/takn_vistvaent_large.png?v=1517682816)
![Niðurbrjótanlegt](https://cdn.shopify.com/s/files/1/2271/3597/files/takn_nidurbrjotanlegt_large.png?v=1517683459)
![Án dýratilrauna](https://cdn.shopify.com/s/files/1/2271/3597/files/takn_an_dyratilrauna_large.png?v=1517682967)