Neem olía
Verð 1.390 kr
/
  • Lagerstaða - 2 stk til á lager
  • Vara á leiðinni
með VSK Sendingarkostnaður reiknast í greiðsluferli
  • Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 20.000kr

Jurtaolía sem er oft notuð í sápur, sjampó og snyrtikrem. Hentar vel bæði fyrir húð og hár

Neem olía er mikið notuð í Suðaustur-Asíu, sérstaklega á Indlandi, þar sem hún hefur lengi verið notuð í landbúnaði sem náttúrulegt skordýravarnarefni, í hefðbundnum lækningum og við framleiðslu snyrtivara. Olían er unnin úr fræjum og laufum neem trésins.

Neem olía inniheldur yfir 35 lífvirk efni og er vinsæl í sápum, húðkremum, naglalökkum og tannkremum vegna náttúrulegra bakteríudrepandi eiginleika sinna. Hún hefur sterkan og sérstakan ilm sem hentar ekki öllum, en margir telja að eiginleikar hennar vegi það upp. Hægt er að milda ilminn með því að blanda henni saman við ilmkjarnaolíur með mildari eða sætari ilm.

Olían er þykk og getur storknað við lægra hitastig, en verður aftur fljótandi við milda upphitun.

100 ml
INCI: Melia Azadirachta Seed Oil

Í indverskum Ayurvedic-textum hefur neemtréð og græðandi eiginleikar þess verið nefndir allt frá um 5000 f.Kr. Neem er ein elsta og mest notaða lækningajurt heims og tilheyrir Meliaceae-plöntufjölskyldunni. Í dag er tréð ræktað í yfir 40 löndum. Á sanskrít kallast neemtréð „Aristha“, sem þýðir „sá sem léttir öllum sjúkdómum“. Á Indlandi er tréð oft kallað „apótek þorpsins“.


This site is protected by hCaptcha and the hCaptcha Privacy Policy and Terms of Service apply.

Nýlega skoðað