Cinnamon - ilmkjarnaolía

Cinnamon - ilmkjarnaolía

Cinnamon - ilmkjarnaolía

Verð 1.690 kr
/
  • Á lager
  • Vara á leiðinni
með VSK Sendingarkostnaður reiknast í greiðsluferli
  • Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 20.000kr

Stimulating - Warming - Energizing

Ilmkjarnaolía úr kanillaufum hefur yndislega sætan og kryddaðan ilm sem er þekktur fyrir að vera hlýjandi og upplífgandi. Olían er náttúrulega örvandi og orkgefandi og getur hjálpað til við að koma huganum í gang þegar mikið er að gera.

Notuð í nudd getur hún verið gagnleg til að lina auma og þreytta vöðva vegna hlýjandi eiginleika sinna (mikilvægt er að þynna olíuna niður í mest 1% áður en hún er borin á húð).

Kanillaufsolía gefur einnig dásamlegan ilm í rými, sérstaklega um jólin. Sambland af kanil-, negul- og appelsínuolíu skapar notalegan hátíðarilm sem færir heimilinu og gestunum hlýju og gleði.

Kanill er upprunalega frá Madagaskar og Suðaustur-Asíu en er nú aðallega ræktaður og framleiddur á Sri Lanka. Kaniltréð er sígrænn og þéttvaxinn runni sem getur orðið 5–15 metra hátt. Laufin, sem olían er unnin úr, eru tínd allt árið um kring, nema á regntímanum. Til að stytta eimingarferlið eru laufin látin þorna í nokkra daga eftir tínslu þar sem þurr lauf má vinna mun hraðar. Ilmkjarnaolían er unnin með gufueimingu úr laufum plöntunnar, annaðhvort í hefðbundnum viðareimingartækjum eða í málmílátum.

Hefðbundið hefur kanill verið notaður sem bólgueyðandi efni, ástargjafi (aphrodisiac), húðmýkjandi og lykteyðir.

INCI: Cinnamomum zeylanicum Leaf Oil

Hægt er að nota ilmkjarnaolíur á marga vegu, t.d.blanda við grunnolíur fyrir nudd eða fyrir líkamsolíu, andlitskrem og andlitsolíur. Má nota í kerti og sápur og frábær sem heimilisilmur í gufutæki, í nuddolíu, baðið, heimilisþrifin og þvottinn.

Athugið að ilmkjarnaolíur eru ekki bornar beint á húð heldur er þeim blandað saman við aðrar hlutlausar olíur eða krem í litlu magni. 

Magn: 10 ml

This site is protected by hCaptcha and the hCaptcha Privacy Policy and Terms of Service apply.

Nýlega skoðað