BLACK SEED EXTRACT - HIGH POTENCY

BLACK SEED EXTRACT - HIGH POTENCY

BLACK SEED EXTRACT - HIGH POTENCY

Verð 3.900 kr
/
  • Á lager
  • Vara á leiðinni
með VSK Sendingarkostnaður reiknast í greiðsluferli
  • Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 20.000kr

Black Seed olía (Nigella sativa) – hrein og öflug náttúruolía

Svartfræ hafa verið notuð í þúsundir ára og voru af mörgum talin hafa nær töfrandi eiginleika. Sagan segir að faraóinn Tutankhamun hafi haft flösku af black seed olíu með sér í grafhvelfingu sína og líklegt er að sú olía hafi verið lífræn.

Plantan Nigella sativa á uppruna sinn í Vestur-Asíu. Hún verður um 40–50 cm á hæð og blómstrar fallegum hvítum blómum. Í dag er hún mest ræktuð á Austur-Indlandi, en egypska ræktunin hefur lengi þótt sú allra besta.

Black Seed olían frá Viridian er af hæstu gæðum.
Hún er unnin úr lífrænum egypskum fræjum, kaldpressuð og sett í hunangslitaðar glerflöskur undir nítrógenþrýstingi til að verja olíuna fyrir lofti og ljósi og tryggja hámarks gæði.

Olían er lífrænt vottuð af Soil Association, sem tryggir að framleiðslan sé laus við skaðleg efni og að engin skordýraeitur eða önnur kemísk efni séu notuð í ræktuninni. Lífræn ræktun vinnur með náttúrunni - ekki gegn henni - og er því betri bæði fyrir fólk og jörðina.

Nigella sativa er einstök viðbót í breitt úrval næringarríkra olía frá Viridian. Fræin eru einnig þekkt sem Blessed Seed og hafa lengi verið vinsæl í Miðausturlöndum og víða í Asíu.

Bragðið er einstakt og því auðvelt að taka olíuna inn. Hún hentar einnig vel út á salöt og er stundum notuð til að nudda höfuð eða bringu.

Viridian leggur mikla áherslu á gæði í allri framleiðslu sinni og því má með sanni segja að þessi olía sé meðal þeirra bestu sem völ er á í dag.

Lykilatriði

  • Sérlega mikill styrkleiki – staðlað í 3% Thymoquinone
  • Án leysiefna
  • Jómfrúarolía, kaldpressuð
  • Engin fylliefni, bindiefni eða gervi íblöndunarefni
  • Lífrænt vottuð
  • Pálmaolíulaus
  • Vegan

Leiðbeiningar: Notaðu dropateljarann, bættu 0,5-1 ml við mat, drykk eða beint í munninn (haldið glerpípettu fyrir ofan munn og látið dropa í munninn) eða eins og mælt er með af heilsusérfræðingi.

Innihald:
100% Lífræn Black Seed (Nigella sativa) Oil - 0.5ml    
Staðlað að 3% Thymoquinone

This site is protected by hCaptcha and the hCaptcha Privacy Policy and Terms of Service apply.

Nýlega skoðað