Illuminating Eye Serum
Með kaffi, bakuchiol og týtuberjum
Serum sem hjálpar til við að draga úr dökkum baugum og bólgum undir augum, þannig að augnsvæðið verður frísklegra og líflegra. Það vinnur einnig á hrukkum og fínum línum og styður við kollagenframleiðslu húðarinnar.
Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega viðkvæmri, þurri og/eða þroskaðri húð.
Notkun
Hristu rúlluna vel fyrir notkun til að tryggja að formúlan blandist vel.
Rúllaðu varlega yfir húðina til að bera serumið jafnt á augnsvæðið.
Ef umfram magn serumsins situr eftir á húðinni, klappaðu því þá mjúklega inn með einum fingri.
Fyrir aukna kælingu og frískandi áhrif má setja rúlluna í ísskáp rétt fyrir notkun.
Innihald
Helstu innihaldsefni:
Bakuchiol (bio-retínól). Bakuchiol er náttúrulegt og mildari valkostur en hefðbundið retínól, en hefur svipaða öldrunarvarnandi og lýsandi virkni, með mun minni líkum á ertingu. Aukinn teygjanleiki, stinnleiki og sléttleiki húðar. Færri fínar línur og hrukkur, jafnari húðlitur og minni litabreytingar. Róar og dregur úr roða, bólgu og ertingu þökk sé bólgueyðandi eiginleikum þess.
Kaffiolía bætir blóðflæði og dregur sýnilega úr dökkum baugum, minnkar bólgu- og pokamyndun undir augum, örvar kollagen- og elastínmyndun og hjálpar til við að styrkja og þétta húðina í kringum augun.
Týtuberjafræolía dregur úr roða og ertingu, minnkar fínar línur og hrukkur og gefur húðinni djúpan raka.
Innihaldsefni (INCI):
Simmondsia chinensis (jojoba) fræolía*, Avena sativa (hafra) kjarnaolía, Rosa canina (hundarósa) fræolía*, Psoralea corylifolia (bakuchiol) fræolía, Coffea arabica fræolía, Vaccinium vitis-idaea (týtuberja) fræolía, Helianthus annuus (sólblóma) fræolía, Rosmarinus officinalis (rósmarín) laufþykkni, tocopherol (vitamín E).
* Innihaldsefni úr lífrænni ræktun
100% vottaðað af náttúrulegum uppruna
84% vottað lífrænt – Vegan