FLUX túrnærbuxur henta bæði fyrir blæðingar og áreynsluþvagleka. FLUX fyrir litlar og miðlungs blæðingar halda upp í 8 tíma, þær halda sama magni og 2 túrtappar eða um 15 ml.
Buxurnar eru úr TENCEL modal efni sem er upprunnið og framleitt í Austurríki með umhverfisvænum og sjálfbærum framleiðsluaðferðum sem fela meðal annars í sér endurnýtingu á bæði vatni og hliðarafurðum. Rakadræga efnið er í nokkrum lögum, úr PUL og bómullarefnum. Öll efnin eru OEKO-Tex vottuð.
Breska fyrirtækið FLUX framleiðir túrvörur með ábyrgum hætti fyrir fólk og fyrir umhverfið.
Af hverju FLUX túrnærbuxur?
 – Margnota. Þær koma í stað einnota túrvara s.s. tappa og binda
 – Góðar fyrir budduna til lengri tíma
Efni, umbúðir og framleiðsla
 – Halda samasem 2 túrtöppum / 15 ml
 – Fást í stærðum XS – XXL
 –  Efni: Buxurnar eru úr 95% TENCEL modal og 5%Elastane. Blúndukantur úr polyester. Rakadræg lög: blanda af PUL og bómullarefnum. Öll efni eru OEKO-Tex vottuð.
 – Án eiturefna, ilmefna og parabena
 – Vegan og Cruelty Free
 – Hannaðar og framleiddar í UK (40% framleiðslunnar) og með ábyrgum hætti í Kína (60% framleiðslunnar)
Notkun og umhirða
 – Skolið eftir notkun með köldu, þvoið í þvottavél á 30 – 40°, hengið til þerris
 – Ekki nota mýkingarefni eða þurrkara, það getur skemmt rakadræga lagið
Og þá eru túrnærbuxurnar tilbúnar til notkunar aftur!