Hannað fyrir feitt hár og inniheldur te trjáa olíu sem kemur jafnvægi á olíu framleiðslu, verndar hársekkina og er einnig vel þekkt fyrir bakteríu- og sveppaeyðandi og sótthreinsandi eiginleika. Piparmynta og rósmarín er einnig bætt út í fyrir hreinsandi eiginleika þeirra.
Gefur hárinu fyllingu og aukinn gljáa. Ilmurinn er skarpur úr jurtum og býður hressandi góðan daginn í morgunbaðinu.
Hársápustykkið er úr 100% náttúrulegum hráefnum, handgert úr lífrænum jurtaolíum, jurtum og ilmkjarnaolíum.
Þyngd: 100 gr.
Notkunarleiðbeiningar:
Nuddaðu hársápustykkinu varlega í hárið. Leggðu hársápustykkið til hliðar og nuddaðu hársvörðinn og hárið með höndunum og láttu hársápuna freyða vel. Mundu að láta freyða líka á hárendunum. Skolaðu úr.
Þegar þú byrjar að nota hársápustykki sem eru á olíugrunni þá gæti hárið þitt orðið örlítið klístrað eða feitt í fyrstu, það mun þó hverfa eftir 1-10 þvotta. Hægt er að draga úr þessum viðbrögðum með því að nota hárskolið sem hárnæringu.
Innihaldsefni:
Kókosolía*, Shea smjör*, glýserín, vatn, castor olía*, moroccan Lava Clay*, rósmarín jurt*, te trjáa ilmkjarnaolía*, sedrusviðar ilmkjarnaolía*, lavender ilmkjarnaolía*, rósmarín laufþykkni*. Linalool**, Limonene**, Geraniol**.
* Vottað lífrænt ræktað hráefni
** Náttúruleg innihaldsefni ilmkjarnaolía