Lífræn graskersfræolía (Pumpkin Seed Oil)

Lífræn graskersfræolía (Pumpkin Seed Oil)

Verð 2.790 kr
/
  • Á lager
  • Vara á leiðinni
með VSK Sendingarkostnaður reiknast í greiðsluferli
  • Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 20.000kr

Graskersfræolía hefur einstaklega mýkjandi eiginleika og er mikið notuð í húðvörur til að hjálpa við að raka og endurnýjun húðfruma. Graskersfræ eru rík af mikilvægum fitusýrum, vítamínum, steinefnum og öðrum plöntunæringarefnum. Sérstaklega eru graskersfræ og olían þeirra góð uppspretta sinks, sem talið er geta dregið úr áhrifum ofnæmis.

Olían getur einnig verið gagnleg við húðvandamálum eins og bólum, exemi, psoriasis eða þurri húð, vegna bólgueyðandi eiginleika sinna.

  • Rík af nauðsynlegum fitusýrum og andoxunarefnum
  • Graskersfræolía er talin ein besta olían til að styðja við hárvöxt og styrkja hársekkina, sérstaklega hjá körlum
  • Full af næringarefnum sem hjálpa til við að berjast gegn sindurefnum
  • Djúpur, hnetukenndur og hlýlegur ilmur ásamt dökkgrænum lit

Efni, umbúðir og framleiðsla
– Stærð: 100 ml og 25 ml
– Ecocert vottað, lífræn og vegan
– Umbúðir: Glerflaska með tappa úr harðplasti
– Framleidd á Bretlandi

Innihald:
Cucurbita Pepo Oil

This site is protected by hCaptcha and the hCaptcha Privacy Policy and Terms of Service apply.

Nýlega skoðað