Kerti - Rosemary, Lavender & Clary Sage 500ml
Ilmkerti gert úr hreinum náttúrulegum hráefnum, úr sojavaxi, ilmkjarnaolíum og bómullarþræði.
Ilmandi jafnvægi á milli róandi lavender og ferskra jurtailma af rósmarín og clary sage er slakandi en um leið endurnýjandi.
-Tilvalið sem gjöf, kertið kemur í handstimpluðu sjálfbæru endurunnu boxi.
-Búið til með vistvænu sojavaxi og bómullarþræði fyrir hreinan bruna.
Stærð: 500ml
Brennslutími: 50 klukkustundir
Notkun:
Mælum með að kertið sé látið loga í 2 klst við fyrstu notkun, þar til vaxið bráðnar upp að brún til að brennslan verði jöfn eftir það.
Klipptu kveikinn niður í 6mm á milli notkunar.
Þegar þú hefur klárað kerti skaltu þvo krukkuna með volgu sápuvatni og endurnýta hana á heimilinu.