Fallegu og klassísku sólgleraugun frá Leosun eru létt og þægileg, til í fjölbreyttum litum og einstaklega sveigjanleg, þannig að nánast ómögulegt er að brjóta þau! Einnig eru þau rispuþolin og þola því mikla notkun.
Stærðin 5+ ára hentar börnum 5-12 ára. Athugið að aldursbilið er eingöngu viðmið þar sem höfuð eru misstór.
Framleidd úr umhverfisvænum efnum, þar á meðal 45% laxerfræum (castor seeds).
Glerið er með hámarksvörn (UV 400, category 3) og augu barnsins því vel varin fyrir skaðlegum geislum sólarinnar.
Koma í fallegum gjafakassa með hulstri utan um gleraugun úr þæfðri ull.