May Chang - Lífræn Ilmkjarnaolía

May Chang - Lífræn Ilmkjarnaolía

May Chang - Lífræn Ilmkjarnaolía

Verð 2.690 kr
/
  • Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 15.000kr
  • Umhverfisvænar og vandaðar vörur
  • Á lager
  • Vara á leiðinni
með VSK Sendingarkostnaður reiknast í greiðsluferli

Róandi - afstressandi - slakandi

May Chang er einnig þekkt sem olía kyrrðarinnar þar sem hún er oft notuð af þeim sem þurfa á djúpum svefni að halda.
Dásamleg róandi "feel good" ilmkjarnaolía og er þekkt fyrir uppbyggjandi og afslappandi eiginleika sína og létta á kvíðatilfinningu hreinsa hugann.

Ilmkjarnaolíuna má nota í nuddolíu, í gufu, í baðið, í heimilisþrifin og í þvottinn svo fátt eitt sé nefnt.

Olíunni má blanda í sápur, hársápur, aðrar olíur eða krem til að fá frískandi ilminn. Athugið að ilmkjarnaolíur eru ekki bornar beint á húð heldur er þeim blandað saman við aðrar hlutlausar olíur eða krem í litlu magni. 

Til að fá frískandi ilm af þvottinum, til dæmis með sápuskeljunum frá Living Naturally sem við hjá Mena notum allar fyrir okkar þvott og bjóðum upp á hér á síðunni, þá er gott að setja nokkra dropa af olíunni í þvottavélina ásamt sápuskeljunum.

Fyrir heimilisþrifin þá er til dæmis gott að setja nokkra dropa af olíunni í vatn og edik til að þurrka af eða skúra. Það má líka nota olíuna beint á klísturbletti (ekki samt á pússaðan eða unnin við og prófið alltaf fyrst á litlu svæði sem sést ekki).

Athugið að imkjarnaolíur eru ekki bornar beint á húð heldur er þeim blandað saman við aðrar hlutlausar olíur eða krem í litlu magni. 

Innihald 10 ml.


Olían kemur í lítilli flösku með dropaskammtara og tappa úr harðplasti.

HandgertVeganLifræntVistvaentNiðurbrjótanlegtÁn dýratilrauna

This site is protected by reCAPTCHA and the Google Privacy Policy and Terms of Service apply.

Loofah sápupúði
690 kr
Nýlega skoðað