WORTHY TIGER EYE ARMBAND

WORTHY TIGER EYE ARMBAND

Verð 11.990 kr
/
  • Lagerstaða - 1 stk til á lager
  • Vara á leiðinni
með VSK Sendingarkostnaður reiknast í greiðsluferli
  • Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 20.000kr

Worthy Tiger Eye Mix armbandið setur sterkan stíl með kraftmiklum gimsteinum. Og þetta eru engir venjulegir steinar – gróf og áberandi stærð þeirra skapar áhrif og gefur lúkkinu karakter. Ofan á það bætist jákvæð samfélagsleg áhrif sem þú styður með því að velja sanngjarnt framleidda vöru. Láttu vaða – þetta armband kallar á þig 😉

Gimsteinar eru skapaðir af náttúrunni og hver steinn er einstakur. Því getur litur skartgripsins þíns verið örlítið frábrugðinn myndinni.

Tígrisauga jarðtengir þig og hjálpar þér að vera til staðar – hér og nú. Hann styður þig í að ganga í gegnum lífið með hugrökku hjarta og minnir þig á hversu kraftmikil/l þú ert í raun. Sjálfstraust og styrkur, rétt eins og tígurinn.

Lapis lazuli er gimsteinn heiðarlegra og sannra tengsla. Þú stendur sterk/ur í þínum sannleika og þorir að tjá það sem býr í hjartanu. Úr þessum einlæga stað laðarðu að þér fólk sem er eins og sólskin fyrir sálina – vinátta í sinni fegurstu mynd.

Reykkvars er verndandi og jarðtengjandi gimsteinn sem hjálpar þér að losa um neikvæða orku og umbreyta henni í styrk. Hann styður þig í að sleppa takinu á því sem þjónar þér ekki lengur og finna ró og stöðugleika í eigin lífi. Með djúpri og jarðbundinni orku minnir reykkvars þig á að þú stendur traust/ur í eigin krafti, sama hvað á dynur.

Sítrín er steinn birtu, gleði og gnægðar. Hann ber með sér hlýja og upplyftandi orku sem minnir á sólskin og léttleika. Sítrín styrkir sjálfstraust, kveikir innri drifkraft og hvetur þig til að skína af eigin ljósi. Með þessum gimsteini við hlið þér fyllist lífið jákvæðni, sköpunarkrafti og bjartsýni.

This site is protected by hCaptcha and the hCaptcha Privacy Policy and Terms of Service apply.

Nýlega skoðað