Vetur - Nins

Vetur - Nins

Verð 6.990 kr
/
  • Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 15.000kr
  • Umhverfisvænar og vandaðar vörur
  • Á lager
  • Vara á leiðinni
með VSK Sendingarkostnaður reiknast í greiðsluferli

Þetta veglega sett í fallegum vetrarlitum býður uppá stærðfræðilega hugsun með því að flokka og telja formin og litina. Hringina má nota til að þræða eða byggja upp turn. Í þessum leikjum er verið að þjálfa samhæfingu handa og augna og fínhreyfingar. Settið bíður upp á óendanlega marga leiki, eina sem þarf er ímynduraflið. Með opnum efnivið er verið að stuðla að skapandi hugsun og mismunandi hugsunarhætti.

Settið inniheldur 3 Nins, 3 Nins með hatt, 9 hringi og 9 myntir. Einnig fylgir með taupoki fyrir settið.

Mælt með fyrir börn 18 mánaða og eldri.

Grapat er fjölskyldufyrirtæki sem er umhugað um opin leik og umhverfisvernd. Viðurinn í leikföngunum er úr sjálfbærum skógum. Leikföngin eru lituð með eiturefnalausri málningu og fær því viðurinn að njóta sín vel í gegn. Liturinn getur orðið daufari við snertingu munnvatns en það þar sem málningin er skaðlaus er það öruggt fyrir börnin. Hvert einasta leikfang er einstakt þar sem þau eru handmáluð.

Grapat hefur unnið að því að vera með plastlausar umbúðir út frá umhverfissjónarmiðum og hefur þeim tekist það síðan 2019. Leikföngin koma fallega innpökkuð í pappaöskjum.

This site is protected by reCAPTCHA and the Google Privacy Policy and Terms of Service apply.

Við mælum einnig með...
Meira frá Barnavörur
Pea - Dinkum Doll
10.990 kr
Fín - Fancy
8.590 kr
Nýlega skoðað