Tunguskafa - Mahogany
Þessi endingargóða og margnota tunguskafa er frábær og umhverfisvænn valkostur, laus við plast og gerð úr náttúrulegum efnum.
Tannlæknar mæla með reglulegri hreinsun á tungu til viðbótar við daglega tannburstun. Slík hreinsun dregur úr vexti óæskilegra baktería og hjálpar til við að koma í veg fyrir andremmu.
Best er að hreinsa tunguna strax eftir að þú vaknar – líkaminn safnar eiturefnum yfir nóttina sem setjast á tunguna.
Notkunarleiðbeiningar:
- Skjóttu tungunni út eins langt og þú getur.
- Dragðu sköfuna 2–3 sinnum varlega frá aftanverðri tungu fram á við.
- Skolaðu munninn og sköfu
- Burstaðu tennurnar eins og venjulega.
- Ekki hentugt fyrir börn yngri en 3 ára.
Efni: Beykiviður, náttúrulega litaður, vaxaður með jurtavaxi / Ryðfrítt læknastál
Litur: Mahóní
Stærð: 14 x 8,5 cm