Taktu fram litina og búðu þig undir frábæra stund með ökutækja litabókinni frá Petit Collage! Litaðu spennandi myndir með bílum, gröfum, dráttarvélum og vegum fullum af farartækjum á ferð. Þegar þú hefur klárað að lita, getur þú skreytt myndirnar með meira en 100 límmiðunum sem fylgja – allir með ökutækjaþema!
- Tilvalið fyrir 4 ára og eldri
- Þessi litabók býður upp á klukkustundir af skapandi skemmtun.
- Framleidd úr FSC-vottuðum pappír og prentuð með jurtableki.
- Plastlaus – engin filmuþekja.
LEIKUR & ÞROSKI – Að lita og nota límmiða styður við þroska barnsins með því að efla samhæfingu handa og augna, litaskyn, skilning á formum og fínhreyfingar. Auk þess örvar það ímyndunarafl, sköpunargleði og sjálfstæðan leik.
Petit Collage var stofnað af henni Lorena Siminovich árið 2006. Markmið fyrirtækisins frá upphafi hefur verið að hafa sjálfbærni að leiðarljósi. Allar vörur eru hannaðar með það í huga að þær endist vel og séu úr hágæða efnivið. Markmiðið er að gera betri heim fyrir komandi kynslóðir og er hver einasta vara hugsuð útfrá því. Efniviðurinn í leikföngunum er endurnýttur pappi, FSC wood og FSC pappír, GOTS vottaður bómull, plöntu blek og vatnsmálning.