Kúlulaga snuð með hringlóttu formi.
Snuðin frá Natursutten eru gerð úr náttúrulegu gúmmí. Þau eru með mýkri áferð en silicone og mjög auðvelt að þrífa þar sem þau eru mótuð í heilu lagi.
- Mótað í heilu lagi! Engar sprungur eða göt þar sem bakteríur safnast saman.
- 100% náttúrulegt gúmmí.
- Í framleiðslu hefur prótenið sem veldur latex ofnæmi verið fjarlægt, þannig að snuðin séu öruggari fyrir barnið.
- Mýkra en silíkon og skilur ekki eftir far á andliti barnsins.
- Umhverfisvænt, sjálfbært og brotnar upp í náttúrunni.
- Framleitt og handgert á Ítalíu eftir Evrópskum gæðastöðlum.
- 3 stærðir í boði.