Töfrafígúrur - Magos Wizards
- Lítið eftir á lager - 2 stk eftir
-
Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 20.000kr
Settið inniheldur 12 Nins Wizards töfrafígúrur í öllum regnbogans litum. Taupoki úr GOTS-vottuðu efni fylgir með.
Nins Wizards fígúrurnar henta einstaklega vel í ímyndunarleik, þar sem börn geta skapað sínar eigin sögur og ævintýraheima. Þær má einnig nota í fjölbreyttum leikjum sem efla meðal annars málþroska og skynjun.
Fígúrurnar eru opinn efniviður sem býður upp á ótal möguleika í leik. Þær hafa hvorki andlitsdrætti né skilgreint kyn og því fá börnin sjálf að ákveða hvaða persónur þær tákna, hvort sem það eru sjóræningjar, vampírur eða eitthvað allt annað sem ímyndunaraflið skapar.
Mælt með fyrir börn 12 mánaða og eldri.
Grapat er fjölskyldufyrirtæki sem er umhugað um opin leik og umhverfisvernd. Viðurinn í leikföngunum er úr sjálfbærum skógum. Leikföngin eru lituð með eiturefnalausri málningu og fær því viðurinn að njóta sín vel í gegn. Liturinn getur orðið daufari við snertingu munnvatns en það þar sem málningin er skaðlaus er það öruggt fyrir börnin. Hvert einasta leikfang er einstakt þar sem þau eru handmáluð.
Grapat hefur unnið að því að vera með plastlausar umbúðir út frá umhverfissjónarmiðum og hefur þeim tekist það síðan 2019. Leikföngin koma fallega innpökkuð í pappaöskjum.
Rykdustari úr strútsfjöðrum - hvítur - 70 cm
ZUMA LEATHER DESERT SAND
Mjög góður og flottur
Virkar mjög vel.
Gives me a smooth shave without irritating
Sjampóduft - rósmarín & koffín