FLUX túrnærbuxur henta bæði fyrir blæðingar og áreynsluþvagleka. FLUX Essential Hipster fyrir mðlungs blæðingar halda upp í 8 tíma, þær halda sama magni og 3 túrtappar eða um 20 - 25 ml.
Þessi nýja lína frá Flux er framleidd úr afgangsefni sem fram að þessu hefur verið hent og þess vegna er hægt að bjóða þessar buxur á lægra verði. Rakadræga efnið er í nokkrum lögum, úr PUL og bómullarefnum. Öll efnin eru OEKO-Tex vottuð.
Breska fyrirtækið FLUX framleiðir túrvörur með ábyrgum hætti fyrir fólk og fyrir umhverfið.
Af hverju FLUX túrnærbuxur?
– Margnota. Þær koma í stað einnota túrvara s.s. tappa og binda
– Góðar fyrir budduna til lengri tíma
Efni, umbúðir og framleiðsla
– Halda samasem 3 túrtöppum / 15 ml
– Efni: Buxurnar eru úr 95% bómull og 5% Elastane. Rakadræg lög: blanda af PUL og bómullarefnum, öll efni eru OEKO-Tex vottuð
– Án ilmefna og parabena
– Vegan og Cruelty Free
– Framleiddar í UK (40% framleiðslunnar) og með ábyrgum hætti í Kína (60% framleiðslunnar)
Notkun og umhirða
– Skolið eftir notkun með köldu, þvoið í þvottavél á 30 - 40°, hengið til þerris
– Ekki nota mýkingarefni eða þurrkara, það getur skemmt rakadræga lagið