Áfylling - Lífrænar sápuskeljar fyrir allan þvott

Lífrænar sápuskeljar
Áfylling - Lífrænar sápuskeljar fyrir allan þvott

Áfylling - Lífrænar sápuskeljar fyrir allan þvott

Verð 990 kr
/
Magn
  • Frítt á pósthús/póstbox ef verslað er fyrir yfir 10.000kr
  • Umhverfisvænar og vandaðar vörur
  • Lagerstaða - 1 stk til á lager
með VSK

Auður mælir með...

Þessum elskum kynntist ég fyrir ekki svo löngu og ég hef kolfallið fyrir þeim!  Þær eru auðveldar í notkun og hreinsa vel allan þvott. Aðalkosturinn er að sjálfsögðu sá að hér fellur ekkert rusl til og engin óþarfa aukaefni eru notuð.  Þær eru mildar og fara vel með litaðan þvott og þar af leiðandi þurfa þær smá aðstoð við að vinna á erfiðum blettum.  Ég nota blettaeyðinn eða fljótandi sápu á bletti áður en ég set tauið í þvottavélina.  Svo finnst mér lyktarleysið af þvottinum kostur.  Ef mig langar í léttan ilm þá nota ég ilmkjarnaolíur í þvottinn.  Lavender og Grape- olíurnar verða oftast fyrir valinu í þvottahúsinu mínu. Og þvottahúsið ilmar svo vel um leið :)“



Sápuskeljar
(e. Soapnuts) eru frábær leið til þess að þvo allan þvott án kemískra þvottaefna.

Sápuskeljar (e. Soapnuts) eru teknar utan af berjum sem vaxa á tré sem heitir Sapindus mukorossi. Skeljarnar eru svo þurrkaðar. Þegar þvottaskeljarnar komast í snertingu við vatn þá losnar úr þeim náttúruleg sápa sem kallast “Sapopin” Þessar skeljar hafa verið notaðar í aldaraðir í Indlandi til þvotta. Þetta er bókstaflega þvottaefni sem vex á trjánum, grænna gerist það varla.

Þvotturinn þinn verður hreinn því þær þvo vel og þar sem þær eru svo mildar deyfa þær ekki liti líkt og tilbúið þvottaefni gerir gjarnan. Sápuskeljarnar henta fyrir allan þvott á hitastigi á bilinu 30°C-90°C og í allar gerðir þvottavéla.

Sápuskeljar skilja ekki eftir sig lykt af þvottinum og fyrir þá sem vilja fá léttan ilm af nýþvegnu tauinu þá mælum við með því að setja nokkra dropa af ilmkjarnaolíu með í þvottavélina. Við bjóðum upp á tvær vinsælar gerðir ilmolía, sítrónu og lavender. Einnig má úða línúða yfir hreinan þvottinn til að fá ilm, til dæmis línúði með lavenderilmi.

Áfyllingin á sápuskeljarnar koma í mismunandi stærðum; 1000 gr. (allt að 480 þvottum), 500 gr. (allt að 240 þvottum) og 225 gr. (allt að 108 þvottum).
Jafnframt fylgir bómullarpoki sem notaður er í þvottavélina utan um skeljarnar.

Leiðbeiningar á íslensku er að finna í flipa hér að neðan.

    India Organic  USDA Organic

HandgertVeganLifræntVistvaentNiðurbrjótanlegtÁn dýratilrauna

This site is protected by reCAPTCHA and the Google Privacy Policy and Terms of Service apply.

Tonys súkkulaði
707 kr
Rakvélablöð 5 stk í pakka
390 kr
679 Tuscan Red 644 Black 650 Carmen red 651 Plum +28
Zao - Naglalökk
2.350 kr
Margnota dömubindi - 3 stærðir
frá 1.190 kr
storeethic,Kavat skór,Voxna WP svartir kuldaskór
storeethic,Kavat skór,Voxna WP svartir kuldaskór
VOXNA WP KULDASKÓR SVARTIR
frá 14.900 kr
Aura - lífrænn svitalyktaeyðir
3.490 kr
Nýlega skoðað