Persónuverndarstefna
Við hjá EKOhúsinu leggjum mikla áherslu á að vernda persónuupplýsingar þínar og tryggja að meðferð þeirra fari fram í samræmi við gildandi lög og reglur, þar á meðal persónuverndarlög og GDPR (General Data Protection Regulation).
Netfang er notað í tengslum við pantanir, en óskir þú eftir að vera á póstlista þá færð þú upplýsingar sendar þar um tilboð, nýjar vörur, blogg og fleira sem okkur þykir fréttnæmt og nytsamlegt að vita fyrir okkar viðskiptavini. Þú getur alltaf skráð þig af póstlistanum hvenær sem er með því að fylgja leiðbeiningum neðst í fréttabréfinu.
Vafrakökur (Cookies)
Vefsíðan notar vafrakökur (cookies) til að bæta upplifun notenda. Með því að nota síðuna samþykkir þú notkun á vafrakökum í samræmi við þessa stefnu.
Hvað eru vafrakökur?
Vafrakökur eru litlar textaskrár sem vistaðar eru á tölvuna þína eða tæki þegar þú heimsækir vefsíðu. Þær eru notaðar til að muna stillingar, skrá hegðun notanda og bæta virkni vefsins.
Tegundir vafrakaka sem við notum:
- Nauðsynlegar kökur: Til að tryggja grundvallarvirkni vefsíðunnar, að tengingar séu öruggar og virkni vefsins eðlileg. Notkun þeirra er ekki háð samþykki notenda síðunnar.
- Persónulegar kökur: Safna upplýsingum til að gera næstu heimsókn á vefsíðuna persónulegri.
- Tölfræðikökur: Safna upplýsingum um hvernig vefurinn er notaður og geta aðlagað hann svo hann þjóni viðskiptavinum á sem bestan hátt. Við notum google analytics og shopify analytics til að skoða almenna umferð á síðunni, hvaða undirsíður eru heimsóttar og fleiri almennar upplýsingar sem gagnast í að greina hvernig vefurinn er að virka.
- Markaðskökur: Notaðar til að safna upplýsingum um hvað notendur skoða á síðunni og þá geta þá sýnt þeim viðeigandi auglýsingar og mæla árangur markaðsherferða. Við notum facebook pixel og google tags í auglýsingaskyni.
Þú getur stillt vafrann þinn þannig að hann hafni vafrakökum eða láti þig vita þegar vafrakökur eru sendar. Þú getur einnig valið hvaða vafrakökur eru virkar á okkar síðu í stillingum.