Nailpresso Collection - naglalakkasett 3 litir

Zao Makeup
Price
Regular price 4,490 kr
Regular price Sale price 4,490 kr
Save
/
  • In stock, ready to ship
  • Backordered, shipping soon
Tax included. Shipping calculated at checkout.
  • Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 20.000kr

Zao kynnir Nailpresso naglalakkasettið. Þetta flotta gjafasett með naglalökkum sækir innblástur í kaffiheiminn og býður upp á úrval tímalausra, hlýrra og fallegra brúnna tóna. Litirnir þrír, sem eru í takt við nýjustu tískustrauma, fanga vetrarstemninguna með náttúrulegum glæsileika.

Gjafasettið kemur í umbúðum sem eru plastlausar og hentar því fullkomlega fyrir þá sem vilja gefa umhverfisvænar gjafir.

Litirnir:
691 Mocha er hlýr, hlutlaus drapplitur.
692 Hazelnut er bjartur og djúpur brúnn litur.
693 Arabica er djúpur og áhrifamikill brúnn litur.

Nailpresso-línan sameinar vegan og náttúruleg hráefni. Inniheldur 89,77% náttúrulegra innihaldsefna úr plönturíkinu, svo sem kartöflum, maís, hveiti og kassava, og er auk þess „11-free“.
„11-free“ merkingin tryggir að formúlan í naglalökkunum sé hreinni, þar sem hún er laus við 11 umdeild efni sem oft finnast í hefðbundnum naglalökkum.

Naglalökkin þorna hratt, þekja vel, endast lengi og hafa mikinn glans – án þess að nokkuð sé gefið eftir varðandi áferðina. Breiður og flatur burstinn auðveldar ásetninguna og tryggir jafna, nákvæma og faglega útfærslu.

Notkun:
Best er að setja tvær umferðir á hreinar neglur. Gott að láta hverja umferð þorna alveg áður en næsta er sett á.
Til að naglalakkið endist extra lengi með því að setja undir- og yfirlakk 636 eða glimmerlakk 665.
Setja einnig smá af undir-og yfirlakki fremst á neglurnar.

Innihaldslýsing:
ETHYL ACETATE, BUTYL ACETATE, NITROCELLULOSE, ADIPIC ACID/NEOPENTYL GLYCOL/TRIMELLITIC ANHYDRIDE COPOLYMER, ALCOHOL, TRIETHYL CITRATE, STEARALKONIUM BENTONITE, ADIPIC
ACID/FUMARIC ACID/PHTHALIC ACID/TRICYCLODECANE DIMETHANOL COPOLYMER, ISOPROPYL ALCOHOL, PHOSPHORIC ACID, AQUA (WATER) MAY CONTAIN (+/-) : CI 77891, CI 60725, CI 19140, CI
15850, CI 77510, CI 77499, CI 77491, CI 77492, CI 77000, CI 47000, CI 42090, CI 77007, CI 12085, CI 45410, CI 16035, CI 15880

INGREDIENTS OF NATURAL ORIGIN: 89.77%

Einhverjar spurningar?

This site is protected by hCaptcha and the hCaptcha Privacy Policy and Terms of Service apply.

Við mælum einnig með...
Recently viewed