Sænska fjölskyldufyrirtækið KAVAT hefur framleitt vandaðan skófatnað frá árinu 1945. Í hjarta merkisins eru gæði, ending og tímalaus hönnun – skór eiga að endast lengi, eldast fallega og helst geta gengið á milli barna. Í dag eru skórnir framleiddir hjá vandlega völdum samstarfsframleiðendum í Evrópu og Asíu. KAVAT leggur mikla áherslu á vandað efnisval, gagnsæi og að lengja líftíma skónna með góðri umhirðu, viðgerðum og endurnýtingu. Merkið hefur lengi verið leiðandi í umhverfisvænni skóframleiðslu og varð árið 2008 fyrst skómerkja í heiminum til að fá EU Ecolabel-vottun á skó.

1 2
Recently viewed