Sænska fjölskyldumerkið MASKA stendur fyrir slow luxury – tímalausar flíkur úr vönduðum efnum sem eru ætlaðar til að endast. Hönnunin byggir á skandinavískri hönnunarhefð og fjögurra kynslóða þekkingu á textíl og handverki. MASKA notar meðal annars ull, kasmír, silki, lífræna bómull og endurunnin efni. Um 95% framleiðslunnar fer fram innan Evrópusambandsins, meðal annars hjá fjölskyldufyrirtækjum á Ítalíu, í Portúgal, Litháen og Búlgaríu, auk samstarfs við vottaða framleiðendur og birgja í Nepal og Indlandi.

Recently viewed