GoBabyGo er danskt vörumerki sem var stofnað með það að markmiði að styðja við hreyfiþroska, jafnvægi og sjálfstraust ungra barna. Sokkar og sokkabuxur merkisins eru með sérhönnuðum gripdoppum undir fótum, á tám og eftir atvikum á hnjám, sem hjálpa börnum að skríða, standa og ganga öruggar á hálum gólfum. Vörurnar eru framleiddar í Evrópu og í dag er GoBabyGo hluti af MP Denmark, sem framleiðir vörurnar í eigin verksmiðju í Lettlandi. Allar vörurnar eru OEKO-TEX® Standard 100 vottaðar og unnar úr vönduðum efnum á borð við lífræna bómull, bambus og merínóull.

Recently viewed