Skilmálar sendingarmáta
Verð á vöru og sendingakostnaður
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 11% eða 24% vsk en sendingarkostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram.
Þegar þú verslar hjá EKOhúsinu færð þú vöruna senda með Íslandspósti eða Dropp, á næsta pósthús/póstbox eða Dropp afhendingarstað. Ef verslað er fyrir 20.000 krónur eða meira eru vörurnar sendar að kostnaðarlausu á næsta pósthús/póstbox eða Dropp afhendingarstað.
Einnig er hægt að velja að sækja í EKOhúsið í Síðumúla 37 á opnunartíma: 11-18 virka daga og 12-16 laugardaga.