Fingramálning 6 litir

Honeysticks
Price
Regular price 6,490 kr
Regular price Sale price 6,490 kr
Save
/
  • In stock, ready to ship
Tax included. Shipping calculated at checkout.
  • Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 20.000kr

Honeysticks fingramálningin er sérstaklega hönnuð fyrir fyrstu skref barnanna í heimi listarinnar. Með mjúkri, þykkri áferð og líflegum litum er hún tilvalin fyrir börn frá 1 árs aldri til að kanna liti, örva skynfærin og gefa sköpunargleðinni lausan tauminn á öruggan og umhverfisvænan hátt.

Þykk og mjúk áferð málningarinnar auðveldar litlum höndum að mála og skapa, hvort sem notaðir eru fingur, penslar, stimplar eða svampar.

Framleidd úr eiturefnalausum innihaldsefnum af snyrtivörugæðum sem eru mild fyrir húðina og umhverfið.

Auðvelt er að þvo málninguna af höndum og flestum yfirborðum með volgu vatni og náttúrulegri sápu.

Settið inniheldur bláan, grænan, gulan, fjólubláan, rauðan og appelsínugulan lit. Hver litur kemur í 60 ml krukku með einkennandi býflugnabúslögun Honeysticks.

Málningin kemur í fallegum og litríkum endurvinnanlegum umbúðum. Krukkurnar eru framleiddar úr 100% endurunnu plasti.

Honeysticks er Nýsjálenskt fyrirtæki sem framleiðir 100% náttúrulegar vörur úr bývaxi, soja vaxi og öðru náttúrulegu hráefni og leggja þau áherslu á sjálfbærni og endurnýtingu. Allar umbúðir eru endurvinnanlegar og litarefni eru eiturefnalaus [food grade].

Einhverjar spurningar?

This site is protected by hCaptcha and the hCaptcha Privacy Policy and Terms of Service apply.

Við mælum einnig með...
Recently viewed