Binta handgerður bolli
- In stock, ready to ship
-
Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 20.000kr
Gerðu kaffistundina enn notalegri með handgerðum bolla frá Sweet Salone. Látlaus hönnun án handfangs og mattur svartur glerungur gefa bollanum tímalaust yfirbragð – fallegur félagi fyrir morgunkaffið eða tebollann í rólegheitunum.
Bollinn er hannaður af KER Reykjavík og handunninn af færum leirkerasmiðum Lettie Stuart Pottery í Síerra Leóne úr leir úr nærumhverfinu. Í hverju eintaki mætast íslensk hönnun og hefðbundið handverk.
Vandað handverk frá upphafi til enda
Það tekur um þrjár til fimm vikur að umbreyta hráum leirnum í fullbúinn bolla. Leirinn er þurrkaður, mulinn og sigtaður áður en hann er blandaður vatni, hnoðaður í höndunum og mótaður á fótknúnum leirkerarennibekk.
Eftir hæga þurrkun er bollinn brenndur í viðarkyntum ofni í að minnsta kosti tólf klukkustundir. Að lokum er hann glerjaður og brenndur aftur. Handverkið gefur hverjum bolla sinn eigin karakter og gerir hversdagslegar stundir aðeins sérstæðari.
Hannaður af KER Reykjavík.
Handunninn hjá Lettie Stuart Pottery í Síerra Leóne.
Gerður úr staðbundnum leir.
Látlaus hönnun án handfangs.
Mattur svartur glerungur.
Þolir ofn og uppþvottavél.
Rykdustari úr strútsfjöðrum - hvítur - 70 cm
ZUMA LEATHER DESERT SAND
Mjög góður og flottur
Virkar mjög vel.
Gives me a smooth shave without irritating
Sjampóduft - rósmarín & koffín