Ævintýrin mín er skemmtileg og fallega hönnuð ferðadagbók sem hjálpar börnum að varðveita minningar úr sínum eigin ævintýrum.
Bókin er um 139 blaðsíður og býður upp á pláss fyrir allt að sex ferðalög. Hún er fullkomin félagi á ferðalögum hvort sem það er stutt helgarferð eða lengra ævintýri.
Í bókinni getur barnið skrifað niður allt sem það upplifir, frá litlu augnablikunum til stóru ævintýranna.
Á vinstri síðum eru auðar blaðsíður þar sem hægt er að skrifa, teikna eða láta hugann reika um daginn, tilfinningar eða hvað sem kemur upp í hugann.
Þannig verða ferðalögin ekki bara minningar í huga heldur varðveitt ævintýri sem hægt er að rifja upp aftur og aftur.
Mundu eftir ævintýrunum þínum, geymdu þau í þessari bók!