Sjampóduft - rósmarín & koffín
- In stock, ready to ship
-
Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 20.000kr
Enn ein geggjuð nýjung frá Awake Organics og varla hægt að lofsama þetta sjampó nógu mikið.
Hársápa í duftformi og virkjast þegar vatn er notað með henni, breytist úr dufti í sjampó sem freyðir vel og hreinsar hársvörðinn án þess að þurrka hann.Hentar vel fyrir allar hárgerðir en sérstaklega fyrir veikt, skemmt (litað) og/eða þunnt hár. Hárið verður ótrúlega hreint og loftmikið.Hársápan er eingöngu gerð úr náttúrulegum hráefnum sem hreinsa vel, en eru mild fyrir hársvörðinn. Rósmarín olía er öflug og mikið notuð við Miðjarðarhaf til að þykkja hár. Rósmarín ilmkjarnaolía eykur blóðflæði sem gerir það að verkum að blóðflæðið eykst til hársekkjanna, styrkir þá og hárið losnar síður. Rósmarín er einnig bakteríudrepandi og bólgueyðandi og dregur þannig úr kláða og og þurrum hársverði.Náttúrulegt koffín úr Guarana fræjum. Guarana inniheldur 4 sinnum meira koffín en kaffibaunir. Koffín eykur blóðflæði í hársverði og til hársekkja sem minnkar hárlos og stuðlar að vexti hársins.Kókosmjólk inniheldur laurínsýru, prótein og vítamín E, B1, B3, B5 og B6. Hún er náttúruleg hárnæring sem nærir, mýkir og styrkir hárið, er mjög mild fyrir hársvörðinn.
Magn: Inniheldur 60 gr. (ca 35 þvottar)
Umbúðir: Hársápan kemur í álflösku sem er endurvinnanleg.
Sjampóduft - rósmarín & koffín
Sjampóduft - rósmarín & koffín
Sjampóduft - rósmarín & koffín
Sjampóduft - rósmarín & koffín
Sjampóduft - rósmarín & koffín
Elska þetta sjampó hárið aldrei verið betra.
Hárið er mýkra og meiri fylling i því. Helst hreinna lengur og er laus við daglegan hárþvott.
Ég mæli svo sannarlega með sjampóduftinu, ég finn strax mikin mun á hárinu og er mjög ánægð!
Þetta sjampó hefur góð áhrif á hárið mitt. Það var orðið þurrt og úfið en fellur mun betur núna. Mun kaupa það aftur.
Frábært. Hef ekki notað annað í 2 ár
Drjúgt og gott sjampó sem þrífur hárið vel svo það verður létt og glansandi. Ég var með þrálátan kláða í hársverðinum sem nú er farinn.
Hef notað þetta í nokkra mánuði og keypti meira.. fer vel með hársvörðinn og er ánægður með það.
Mæli með, finn mikin mun á hárinu mínu
Er búin að nota sjampóduftið í nokkur skipti og er mjög ánægð med það.
Keypti líka hárnæringuna í rósmarin &koffín og er búin að nota það 3svar lofar góðu. 😊
annað skiptið sem ég kaupi þetta sjampó, sjúklega létt og finnst hárið haldast hreint lengur en með öðrum sjampóum
Mjög gott
Mjög mikill munur á hárinu (á góðan hátt)🥰😊
Mjög ánægð. Hefur góð àhrif á þykkt hársins:)
Alltaf allt æði sem ég kaupi hjá ykkur, elska t.d. þvottaefnið, svooooo góð lykt!
Hárið sprettur mjög hratt
Mjög gott sjampó. Er sérlega ánægð með það og gengur mun betur að ráða við hárið á mér en ég með mikið að erfiðum sveipum í því.
Hrifin af umbúðunum, tekur lítið pláss, létt og auðvelt að taka með sér í ferðalög.
Frábært sjampó, gott að nota það, notadrjúgt og gott fyrir hár og hársvörð. Sérstaklega þægilegt hvað það tekur jú lítið pláss :)
Besta sjampó sem èg hef prufað! Èg er með fíngert og feitt hàr og hef prufa mjööög mörg og dýr sjampó en þetta er það allra besta👌
Ég er á öðrum brúsanum. Það segir eitthvað. Mér finnst þetta mjög gott sjampó og ég elska lyktina af því 😊
mjög góðar vörur og hárið er hreinnt :)
!
Mjög ánægð með duft sjampóið
Mest hissa hvað ég þarf litið af þessu duftinu
coffin og rósmarin sjapoduftið er frábært í mitt hár
Ég er rosalega ánægð með caffeine+rosemary shampóið þarf mjög lítið duft,ég er með mjög fíngert og það er meira loft í því og næringin coconut+sesame er verulega góð , skóla hana ekki alveg úr hárið er mjúkt og heilbrigðara.
Shampóið og hárnæringin hefur dregið úr hárlosi. Það er meiri loft og líf í hárinu mínu. Frábærar vörur
Rykdustari úr strútsfjöðrum - hvítur - 70 cm
ZUMA LEATHER DESERT SAND
Mjög góður og flottur
Virkar mjög vel.
Gives me a smooth shave without irritating
Sjampóduft - rósmarín & koffín