- In stock, ready to ship
-
Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 20.000kr
Heilbrigði - upplífgandi - dregur úr umfram olíu húðarinnar.
Grapefruit ilmkjarnaolían er dregin úr berki ávaxtarins. Sætur sítrusilmur og hátt Limonene innihald (u.þ.b. 90%), gerir hana frábæra til að berjast gegn bólum og draga úr olíu sem situr á húðinni. Oft blönduð með öðrum ilmkjarnaolíum.
Hægt er að nota ilmkjarnaolíur á marga vegu, t.d.blanda við grunnolíur fyrir nudd eða fyrir líkamsolíu, andlitskrem og andlitsolíur. Má nota í kerti og sápur og frábær sem heimilisilmur í gufutæki, í nuddolíu, baðið, heimilisþrifin og þvottinn.
Athugið að ilmkjarnaolíur eru ekki bornar beint á húð heldur er þeim blandað saman við aðrar hlutlausar olíur eða krem í litlu magni.
Til að fá frískandi ilm af þvottinum, til dæmis með þvottaskeljunum frá Living naturally sem við hjá EKOhúsinu fnotum allar fyrir okkar þvott og bjóðum upp á hér á síðunni, þá er gott að setja nokkra dropa af olíunni í þvottavélina ásamt þvottaskeljunum.
Fyrir heimilisþrifin þá er til dæmis gott að setja nokkra dropa af olíunni í vatn og edik til að þurrka af eða skúra. Það má líka nota olíuna beint á klísturbletti (ekki samt á pússaðan eða unnin við og prófið alltaf fyrst á litlu svæði sem sést ekki).
Magn: 10 ml
INCI name: Citrus Paradisi
Rykdustari úr strútsfjöðrum - hvítur - 70 cm
ZUMA LEATHER DESERT SAND
Mjög góður og flottur
Virkar mjög vel.
Gives me a smooth shave without irritating
Sjampóduft - rósmarín & koffín