Nins, Hringir og peningir

Grapat
Price
Regular price 8,490 kr
Regular price Sale price 8,490 kr
Save
/
  • Low stock - 2 items left
Tax included. Shipping calculated at checkout.
  • Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 20.000kr

Settið inniheldur 6 Nins fígúrur, 36 hringi og 18 skífur í öllum regnbogans litum. Taupoki úr GOTS-vottuðu efni fylgir með.

Hringirnir eru í sex mismunandi litum og hægt er að stafla þeim þannig að þeir feli Nins fígúrurnar alveg. Skífurnar má nota til að stjórna hæðinni og láta fígúrurnar birtast smám saman, fela þær til hálfs eða láta þær hverfa alveg.

Einfaldur en líka fjölbreyttur efniviður sem býður upp á ótal möguleika í skapandi leik.

Grapat er fjölskyldufyrirtæki sem er umhugað um opin leik og umhverfisvernd. Viðurinn í leikföngunum er úr sjálfbærum skógum. Leikföngin eru lituð með eiturefnalausri málningu og fær því viðurinn að njóta sín vel í gegn. Liturinn getur orðið daufari við snertingu munnvatns en það þar sem málningin er skaðlaus er það öruggt fyrir börnin. Hvert einasta leikfang er einstakt þar sem þau eru handmáluð.

Grapat hefur unnið að því að vera með plastlausar umbúðir út frá umhverfissjónarmiðum og hefur þeim tekist það síðan 2019. Leikföngin koma fallega innpökkuð í pappaöskjum.

Einhverjar spurningar?

This site is protected by hCaptcha and the hCaptcha Privacy Policy and Terms of Service apply.

Við mælum einnig með...
Recently viewed