Valdefling kvenna

Valdefling kvenna

Gleðilegt Líf
Price
Regular price 4,990 kr
Regular price Sale price 4,990 kr
Save
/
Tax included. Shipping calculated at checkout.
  • Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 20.000kr

Hönnuðir slaufunnar í ár eru listaparið Tanja Levý, hönnuður, og Jökull Jónsson, arkitekt. Saman reka þau hönnunarstofuna Studio Pluto. Slaufan varð til samhliða krabbameinsmeðferð Tönju og veitir einstaka innsýn í ferlið þegar krabbamein kollvarpar tilverunni. 

Bleikur október 2025 var áhrifamikill í lífi þeirra þegar Tanja greindist með brjóstakrabbamein. Hún var þá 36 ára með ársgamalt barn þeirra á brjósti. 

Slaufan er tákn sem fólk getur speglað sig í; hvort sem það hefur sjálft greinst, er aðstandandi eða vill einfaldlega sýna málefninu stuðning.  

Fremri borði slaufunnar er spegilsléttur og táknar tímabilið fyrir greininguna. Aftari borðinn er hrjúfur og stendur fyrir krabbameinsmeðferðina. Sprungan er tákn um áskoranir og ör á líkama og sál sem fylgja krabbameinsmeðferð. Sprunguna prýðir bleikur steinn sem táknar styrk, von og samstöðu.  

Þau sóttu innblástur í japanska aðferð sem kallast Kintsugi þar sem brotnir hlutir eru límdir saman með gulli til að heiðra brotin, ekki til að fela þau heldur sýna þau. Brotin segja sögu hlutarins og hann er talinn ekkert síður fallegur þótt að brotin sjáist. 

Einhverjar spurningar?

This site is protected by hCaptcha and the hCaptcha Privacy Policy and Terms of Service apply.

Við mælum einnig með...
Recently viewed