Kinnalitur fljótandi - Blush Bomb - 362 Peach Sorbet
- Low stock - 1 item left
-
Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 20.000kr
Leyfðu litunum njóta sín! Nýju litsterku kinnalitirnir frá Zao í fljótandi formi lífga upp á yfirbragðið með einni stroku. Formúlan er litsterk, endingargóð og rakagefandi, +aferðin er létt og blandast auðveldlega inn í húðina og gefur ferskt, ljómandi útlit.
Notaðu nokkra dropa til að auka litstyrkinn eða skapa náttúrulegra útlit, allt eftir því hvernig varan er borin á. Hægt er að nota litinn á kinnar, augnlok og varir til að leika sér með andlitsdrætti og skapa hátísku útlit þar sem sami liturinn er notaður á fleiri en einn stað.
Blush Bomb fæst í þremur líflegum og heillandi litbrigðum:
360 Candy Pink: líflegur og kraftmikill bleikur litur fyrir skemmtilegt og djarft útlit.
361 Framberry: sterkur og áberandi hindberjableikur, fullkominn til að gefa húðinni samstundis heilbrigðan ljóma.
362 Peach Sorbet: mjúkur og ljómandi ferskju-litur sem gefur húðinni ferskleika og ljóma.
Snyrtivörurnar frá Zao koma í einstökum umbúðum úr lökkuðum bambus og eru því bæði falleg gjöf og vara sem vert er að eiga.
Helstu innihaldsefni:
Candelilla-vax: Hjálpar til við að auka endingartíma kinnalitsins. Vaxið gerir það að verkum að liturinn festist vel við húðina, blandast auðveldlega og helst á allan daginn.
Kísill (Silica): Þetta innihaldsefni bætir áferð kinnalitsins og auðveldar notkun. Kísillinn hjálpar til við að slétta áferð húðarinnar og draga úr glans, sem gefur mýkri og náttúrulegri áferð.
E-vítamín: Þetta andoxunarefni hjálpar til við að vernda húðina og formúluna sjálfa. Það viðheldur ljóma húðarinnar og veitir henni þægindi og vörn í daglegri notkun.
Jojoba-olía: Gefur húðinni raka án þess að skilja eftir slikju á húðinni. Hjálpar kinnalitnum að blandast betur við húðina og gerir hana mjúka og teygjanlega.
Þyngd: 10 gr.
Áfyllanlegt: Já
Innihaldslýsing:
CAPRYLIC/CAPRIC TRIGLYCERIDE, C10-18 TRIGLYCERIDES, SILICA, CANDELILLA CERA (EUPHORBIA CERIFERA (CANDELILLA) WAX), GLYCERYL BEHENATE (GLYCERYL
BEHENATE), GLYCERYL ROSINATE, POLYGLYCERYL-3 DIISOSTEARATE, POLYGLYCERYL-4 CAPRATE, CI 77742 (MANGANESE VIOLET), CI 45410 (RED 27 AL LAKE ), CI 77891 (TITANIUM DIOXIDE), COPERNICIA CERIFERA CERA (COPERNICIA CERIFERA (CARNAUBA) WAX)*, HYDROGENATED JOJOBA OIL, PARFUM (FRAGRANCE), LECITHIN, CI 19140 (YELLOW 5 LAKE), CI 15850 (RED 6 ), CI
15850 (RED7 LAKE), TOCOPHEROL, ASCORBYL PALMITATE, KAOLIN, CITRIC ACID
97.7% OF THE TOTAL INGREDIENTS ARE OF NATURAL ORIGIN.


Rykdustari úr strútsfjöðrum - hvítur - 70 cm
ZUMA LEATHER DESERT SAND
Mjög góður og flottur
Virkar mjög vel.
Gives me a smooth shave without irritating
Sjampóduft - rósmarín & koffín