AGE DEFYING HYDRATING FACE MIST
- In stock, ready to ship
-
Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 20.000kr
Fyrir þurra og rakasnauða húð
Gefðu þyrstri húð raka, líf og ferskleika með þessu 100% náttúrulega og lífrænt vottuða andlitsspreyi. Spreyið sválar húðinni samstundis og lengi og vinnur gegn öldrun, gefur raka, fyllir og eykur kollagen – allt á náttúrulegan hátt.
Formúlan inniheldur Glycoin, sameind úr upprisuplöntunni (resurrection plant), sem lífgar húðina við og endurheimtir raka hennar um leið og spreyjað er – og eykur raka húðarinnar um 49,5% á aðeins 2 klukkustundum*. Efnið styður einnig við lífskraft frumna, bætir teygjanleika og ljóma og róar ertingu. Hyaluronic sýra í mörgum sameindastærðum gefur langvarandi raka og fyllir og sléttir fínar línur. Lífrænt rósavatn úr gufueimdum búlgörskum rósablöðum ilmar mildilega, tónar og frískar húðina.
*Niðurstöður úr in vivo rannsókn á 20 þátttakendum.
Notkun:
Notaðu sem rakagefandi andlitsvatn eftir hreinsun: spreyjaðu yfir andlit og háls og þrýstu mildilega inn í húðina, sérstaklega á fínar línur og hrukkur. Einnig má spreyja yfir andlitið yfir daginn til að fríska upp á húðina eða farðann.
Varan er COSMOS lífrænt vottuð, vegan og cruelty free. Vottanir og sjálfbærnifullyrðingar eru staðfestar af óháða aðilanum Provenance.
Innihaldsefni:
Aqua (Water), Rosa Damascena Flower Water*, Pentylene Glycol (from Sugar Cane), Glycerin**, Glyceryl Glucoside, Sodium Hyaluronate, Aloe Barbadensis Leaf Juice Powder*.
*Innihaldsefni úr lífrænni ræktun **Framleitt úr lífrænum hráefnum
Rykdustari úr strútsfjöðrum - hvítur - 70 cm
ZUMA LEATHER DESERT SAND
Mjög góður og flottur
Virkar mjög vel.
Gives me a smooth shave without irritating
Sjampóduft - rósmarín & koffín