Kynntu þér Minnisbókina Lotus. Hún er með 120 línustrikuðum blaðsíðum og er í stærðinni 140 x 210 mm (A5). Bókin er græn á litinn, skreytt lótusblómi og gylltri áletrun sem segir: „let it come, let it go“.
Kápur allra minnisbókanna okkar eru unnar úr endurunnu efni – framleiddar úr afgangsefnum frá fataiðnaðinum, sem gerir hverja bók sjálfbæra og einstaka.
Lótusinn kennir þér að með því að sleppa takinu varðveitir þú hreinleika þinn og heldur tryggð við sjálfa/n þig. Þannig geturðu skapað dýpri og einlægari tengsl við aðra. Láttu þetta tákn minna þig á að þegar þú sleppir einhverju, opnarðu jafnframt dyr að þinni eigin framtíð.