Hver er ég? – Skemmtilegur spurninga/gisk leikur fyrir alla fjölskylduna!
Er ég dýr? Er ég hlutur? Er ég stór? Gef ég frá mér hljóð?
Svo margar spurningar, svo lítill tími! Þessi fjörugi leikur fyrir alla fjölskylduna tryggir hlátur og skemmtun frá fyrstu mínútu.
Innihald:
- 4 spilagleraugu í 2 stærðum
- 1 tímaglas
- 50 litrík hlutaspjöld
Upplýsingar:
- Fyrir 2–4 leikmenn
- Meðalleiktími: 15 mínútur
- Hentar börnum á aldrinum 4–8 ára
- Framleitt úr endurunnum pappa og prentað með jurtableki
Fullkomið fyrir afmæli, fjölskyldukvöld eða skemmtilega samveru! Hver mun giska rétt á kortið sitt fyrst?
Petit Collage var stofnað af henni Lorena Siminovich árið 2006. Markmið fyrirtækisins frá upphafi hefur verið að hafa sjálfbærni að leiðarljósi. Allar vörur eru hannaðar með það í huga að þær endist vel og séu úr hágæða efnivið. Markmiðið er að gera betri heim fyrir komandi kynslóðir og er hver einasta vara hugsuð útfrá því. Efniviðurinn í leikföngunum er endurnýttur pappi, FSC wood og FSC pappír, GOTS vottaður bómull, plöntu blek og vatnsmálning.