Þessi skrúbbhanski er flott blanda úr hampi, hör, bómull og koparþráðum og hentar vel til að þurrbursta sem og blautbursta húðina. Einnig hægt að nota sem þvottapoka.
Koparþræðirnir hafa bakteríudrepandi eiginleika, þeir hitna við létt nudd og veita því hlýja tilfinningu og hita á meðan á burstun stendur.
Notkun skrúbbhanska örvar sogæðakerfið, gott er að nudda létt í hringi og byrja frá tám upp líkamann í átt að hjartanu svo frá fingrum í átt að hjartasvæði. Eftir skrúbbið er dásemd að bera líkamsolíu eða krem á húðina.
30% hampur, 25% hör, 25% bómull og 20% koparþráður - skrúbbhanskinn er fínofinn.
Má þvo á 50° C - leyfið skrúbbhanskanum að þorna á milli notkunar.